Mountain Retreat
Hildiberg vinnur að lýsingarhönnun fyrir Fjallaböðin (The Mountain Baths) og hótelið Mountain Retreat, sem Bláa lónið byggir upp í Rauðukömbum í Þjórsárdal. Fjallaböðin eru náttúruböð með baðsvæði inni í fjallinu, gufubaði og útsýni yfir dalinn, og hótelið verður með 40 svítum, hver með einkalaug á svölunum. Arkitektar eru Basalt arkitektar og innanhússhönnun og hugmyndavinna er í höndum Blue Lagoon Design. Stefnt er að því að öll starfsemi Bláa lónsins í Þjórsárdal verði komin í fullan rekstur vorið 2028. Lýsingarhönnun Fjallabaðanna er unnin í samstarfi við D'Alesio & Santoro.
TEGUND
Hótel og böð (Mountain Retreat og Fjallaböðin)
DAGSETNING
2025
STAÐSETNING
Rauðukambar, Þjórsárdalur
VERKKAUPI
Bláa lónið
ARKITEKT
Basalt arkitektar
INNANHÚSSHÖNNUN OG HUGMYNDAVINNA
Blue Lagoon Design
LÝSINGARHÖNNUN
Hildiberg og D'Alesio & Santoro
RAFLAGNAHÖNNUN
Ferill
Create Your First Project
Start adding your projects to your portfolio. Click on "Manage Projects" to get started

