
Lýsing eykur jákvæða upplifun af rýmum og svæðum.
Hildiberg er skapandi hönnunarhús með áherslu á lýsingarhönnun og upplifun rýma. Við höfum hlotið margvíslegar viðurkenningar og hönnunarverðlaun fyrir lýsingarhönnun, mannvirki, ljósabúnað, sýningar og ljóslistaverk.
Kristján Kristjánsson
Kjartan H. Óskarsson
Brynjar Óli Ólafsson
Lýsingarhönnuður MSLL kristjan@hildiberg.is +354 6257710 Kristján hefur starfað við lýsingarhönnun frá árinu 2004 og komið að fjölbreyttum alþjóðlegum verkefnum. Hann hefur einnig starfað sem ljóslistamaður og sett upp ljóslistaverk víða um Evrópu á síðustu árum, auk þess að hafa lýst verk og muni fyrir listasöfn á Íslandi og í Bretlandi. Kristján hóf feril sinn hjá Lumex árið 2004. Eftir að hafa starfað sem lýsingarhönnuður og listamaður í nokkur ár fór hann í nám í lýsingartækni og síðan lýsingarhönnun, sem hann lauk árið 2009. Hann var ráðinn til EFLU verkfræðistofu árið 2013 sem lýsingarhönnuður, flutti til Edinborgar árið 2015 og starfaði hjá hönnunarstofunni KSLD til 2019. Eftir rúmt ár hjá Lisku lýsingar- og raflagnastofu stofnaði hann Hildiberg hönnunarhús árið 2020. Kristján er viðurkenndur faglegur lýsingarhönnuður hjá bresku verkfræðisamtökunum CIBSE – SLL og meðlimur í DarkSky International.
Lýsingarhönnuður / Húsgagna- og Innanhússarkitekt MFA kjartan@hildiberg.is +354 8975574 Kjartan hefur starfað sem innanhússarkitekt frá 1998, fyrst á Ítalíu að námi loknu og síðan hjá Arkþingi arkitektum þar til hann hóf sjálfstæðan rekstur. Samhliða því starfaði hann með hléum sem lýsingarhönnuður fyrir Rafkaup hf. Frá 2014 hefur Kjartan aðallega starfað við hönnun og framleiðslu á ljósum og húsgögnum fyrir eigið fyrirtæki, bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum, samhliða störfum fyrir Hildiberg. Hann hefur tekið þátt í fjölda hönnunar- og vörusýninga víða um heim og hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Kjartan er lærður húsgagna- og innanhússarkitekt frá ISAD í Mílanó og með mastersgráðu (MFA) í húsgagnahönnun og framleiðslu frá RISD í Providence í Bandaríkjunum.
Lýsingarhönnuður brynjar@hildiberg.is +354 6162779 Brynjar hefur brennandi áhuga á fagurfræði og tæknilegri lýsingarhönnun. Hann er með sveinspróf í rafvirkjun og býr að mikilli þekkingu á uppsetningu ljósakerfa og á ljósastýringum. Árið 2019 hóf hann störf við sölu og lýsingarráðgjöf hjá Rafkaup, þar sem hann sérhæfði sig meðal annars í ljósastýringum fyrir heimili. Árið 2021 var hann ráðinn til EFLU verkfræðistofu sem lýsingarhönnuður og kom til Hildibergs árið 2022.
Eva Drífudóttir
Lýsingarhönnuður / Innanhússarkitekt BFA / FHI. eva@hildiberg.is