
Lýsing eykur jákvæða upplifun af rýmum og svæðum,
Við eru skapandi hönnunarhús með áherslu á lýsingarhönnun og upplifun rýma.
Við höfum hlotið margskonar viðurkenningar og hlotið margvís hönnunarverðlaun bæði fyrir lýsingarhönnun, mannvirki, ljósabúnað, sýninga og ljósalistaverka.

Dario Nuñez Salazar
Lýsingarhönnuður M.A. / IALD - Arkitekt dario@hildiberg.is Darío er arkitekt með meistaragráðu í lýsingarhönnun frá Hochschule Wismar í Þýskalandi. Hann hóf starfsferil sinn árið 2004 hjá Artenluz í Mexíkó og flutti til Íslands árið 2007 og hóf þá störf hjá Lumex. Þá sótti Darío sér alþjóðareynslu og starfaði m.a. fyrir Light-Cibles í Singapúr, L-Plan í Berlín og WSP Ljusdesign í Malmö. Síðustu ár hefur Daríó verið leiðandi í lýsingarhönnun hjá Verkfræðistofunni Verkís. Einnig hefur hann verið varaformaður Ljóstæknifélags Íslands. Jafnframt hefur Darío tekið þátt í ýmsum viðburðum tengdum lýsingarhönnun hér heima og erlendis, bæði sem fyrirlesari og stýrt vinnuhópum. Hann hefur einnig hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga í ljósahönnun. Árið 2023 ákvað Darío að ganga til liðs við Hildiberg Hönnunarhús. Darío er meðlimur í alþjóðasamtökum lýsingarhönnuða IALD

Kjartan H. Óskarsson
Lýsingarhönnuður / Húsgagna- og Innanhússarkitekt MFA kjartan@hildiberg.is Kjartan starfaði sem innanhússarkitekt frá 1998, fyrst á Ítalíu eftir nám og svo hjá Arkþing arkitektum þar til að hann hóf að starfa sjálfstætt. Meðfram því starfaði hann sem lýsingarhönnuður fyrir Rafkaup hf með hléum. Síðan 2014 hefur Kjartan aðalega starfað við hönnun og framleiðslu á ljósum og húsgögnum fyrir eigin fyrirtæki, bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum og gerir enn ásamt því að vinna fyrir Hildiberg. Kjartan hefur tekið þátt í mörgum hönnunar- og vörusýningum víða um heim og hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir. Kjartan er lærður húsgagna og innanhússarkitekt frá ISAD í Mílanó á Ítalíu og er með mastersgráðu (MFA) í húsgagnahönnun og framleiðslu frá RISD, Providence USA.

Brynjar Óli Ólafsson
Lýsingarhönnuður brynjar@hildiberg.is Brynjar hefur brennandi áhuga á fagurfræði og tæknilegri lýsingarhönnun. Brynjar er með sveinspróf í rafvirkjun og hefur öðlast mikla þekkingu á uppsetningu á ljósakerfum ásamt því að hafa þekkingu ljósastýringum. Árið 2019 hóf hann störf við sölu og lýsingarráðgjöf hjá Rafkaup þar sem hann sérhæfið sig t.d. í ljósastýringum fyrir heimili. Brynjar var svo ráðin til EFLU verkfræðistofu 2021 sem lýsingarhönnuður.

Kristján Kristjánsson
Lýsingarhönnuður MSLL kristjan@hildiberg.is Kristján hefur 16 ára víðtæka reynslu í lýsingarhönnun og hefur komið að fjölbreyttum alþjóðlegum verkefnum. Kristján hefur líka starfað sem ljóslistamaður og sett upp ljóslistaverkefni víða um Evrópu á síðustu árum. Ásamt að hafa séð um að lýsa verk og muni fyrir listasöfn á Íslandi og Bretlandi. Kristján byrjaði feril sinn hjá Lumex 2004 en eftir að hafa starfað sem lýsingarhönnuður og listamaður í nokkur ár fór Kristján í nám í lýsingartækni og svo lýsingarhönnun sem hann lauk 2009. Kristján var ráðinn til EFLU verkfræðistofu 2013 sem lýsingarhönnuður. 2015 flutt Kristján til Edinborgar og hóf störf á hönnunarstofunni KSLD og starfaði þar til 2019. Kristján starfið í rúmt ár hjá Lisku lýsingar og raflagnastofu áður en hann stofnaði Hildiberg hönnunarhús árið 2020. Kristján er viðurkenndur sem faglegur lýsingarhönnuður frá bresku verkfræðisamtökunum (CBISE – SLL) ásamt að vera meðlimur í dark sky association