top of page
Search

Samfélagið í fyrirrúmi – Hildiberg styður við björgunarsveitir og tónlistarmenningu

  • kristjanbulb
  • May 8
  • 2 min read

Einn af hornsteinum í starfsemi Hildibergs hefur frá upphafi verið að styðja við verkefni sem efla og styrkja samfélagið okkar. Í síðustu viku voru tvö slík verkefni sem Hildiberg hefur tekið þátt í formlega sett af stað – hvort öðru ólík en bæði mikilvæg fyrir lífsgæði og menningu.


Ný björgunarmiðstöð Hjálparsveitar skáta í Kópavogi


Við hjá Hildiberg erum einstaklega stolt af því að hafa tekið þátt í byggingu nýrrar björgunarmiðstöðvar Hjálparsveitar skáta í Kópavogi. Sveitin leitaði til okkar eftir aðstoð við lýsingu í nýrri aðstöðu þeirra – meðal annars í Fjallasalnum, glæsilegum samkomusal fyrir félagsmenn sem einnig verður nýttur til útleigu fyrir veislur og viðburði. Það skapar nýja fjáröflunarleið fyrir sveitina og styrkir rekstur hennar til framtíðar.

Við tókum þetta verkefni að okkur með glöðu geði og lagði Hildiberg til ráðgjöf, vinnu og hluta af ljósabúnaði – allt unnið í sjálfboðavinnu. Útkoman er stórglæsileg og við óskum Hjálparsveit Skáta hjartanlega til hamingju með nýju höfuðstöðina. Það gleður okkur að vita að aðstaðan muni nýtast bæði sveitinni og samfélaginu í Kópavogi um ókomin ár.


Reykjavík Folk Festival – Endurvakning með krafti og ástríðu


Endurvakning Alþýðu tónlistarhátíðarinnar Reykjavík Folk Festival vakti mikla gleði, sem haldin var nú í fyrsta skipti frá árinu 2018. Þegar við fréttum að undirbúningur væri hafinn ákváðum við strax að bjóða aðstoð okkar – í formi ráðgjafar, fjárstyrks og hönnunarvinnu. Atli Hilmarsson kom okkur þar sérstaklega til aðstoðar með grafíska hönnun og öðrum þáttum, og fær hann okkar innilegustu þakkir.

Hátíðin var sannkölluð tónlistarveisla – þar komu fram margir af okkar uppáhalds listamönnum, þar á meðal Snorri Helgason, Margrét Arna, Trad Session, Birtadís og Harun BREK, Hank & Pattie, Pétur Ben, Salsakommúnan, Blood Harmony og hinn óviðjafnanlegi Júníus Meyvant. Svo var það sérstök upplifun að fá að sjá Markétu Irglová og kynnast tónlist Jelenu Ciric í fyrsta sinn.

Við viljum sérstaklega hrósa hljómsveitinni BREK fyrir hugrekkið og metnaðinn sem þau sýndu með því að halda alþjóðlega hátíð með stuttum fyrirvara og takmörkuðum aðföngum – fyrir utan ást þeirra á íslenskri tónlist.





 
 

© 2025 Hildiberg Hönnunarhús ehf

Vatnagarðar 6. 104 Reykjavík

kt: 520820-0190 

hildiberg@hildiberg.is

+354 625 7710 

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page